Já, merkilegt hvað stoltið er stór hluti af sjálfinu.
Nú fyrir nokkrum mínútum vorum við að, og ég leyfi mér að nota
orðið "busta", Kvennaskólann í Gettu Betur. Vel gert strákar verð
ég að segja... 30-20 eru ekki slæm hlutföll og 21 stig í hraða,
nokkuð gott...
Svo er það HM í handbolta sem byrjar núna um helgina. Það er
annað dæmi um stolt. Við, Íslendingar, sláum eign okkar á liðið í
heild sinni og þeir eru "strákarnir okkar". (rétt eins og
strákarnir í Gettu Betur liðinu eru sjálfkrafa eign allra
MR-inga)...
Svo eitt dæmi í viðbót. Eurovision, við erum alltaf á leiðinni
að sýna allri heimsbyggðinni hvað í okkur býr og búin að sigra
keppnina áður en lagið er samið. Það virðist bara vera formsatriði
að hafa lag í söngvakeppninni nú til dags.
Ísland, bezt í heimi....
Jæja allavegana.. nóg af stoltinu (sem er farið að jaðra við
egói)
Í dag í ensku sáum við brot úr Chaplin mynd, ég var algerlega að
kálast úr hlátri, þvílik snilld. Það þarf ekki að vera flókið til
að kæta mig.
Ég var að hala niður á i-podinn minn fullt fullt af góðum lögum
í gær... því var ekki vel tekið af spilahópnum.. mér var snarlega
skippt úr fyrir Ragga i-pod .. sem má reyndar eiga það að er nokkuð
nettur bara...
Fór á James Bond í gær (loksins)... hún var ÆÐISLEG...
æðisgengin... Besta Bond mynd sem ég hef séð... Ekki þessar eilífu
asnalegu tæknibrellur með bílum sem geta flogið og klukkum sem er í
raun byssa..... jæja.. of óraunverulegt fyrir minn smekk...
Ég fór aftur í World Class Groove Step í dag. Þvílík snilld sem
þessir tímar eru! Fyndið lika.. það er svona spes menning þarna...
alltaf sömu konurnar sem kunna allar rútínurnar algerlega utanað og
eru farnar að kynnast innbyrðis... gaman .. þó ég sé ekki beint
partur af þessu samfélagi (allavegana ekki ennþá)... en ég mun
halda áfram að fara í þessa tíma á mánud og miðvikud.... slatti af
armbeygjum (og í dag magaæfingum) gerðar sem er náttúrulega bara
gott mál... verð orðin helmössuð áður en langt um líður.... (eða
ætti ég að segja, aðeins meira mössuð? ég er nú svoddan massi)
Ég er algerlega að uppgötva Björgvin Halldórsson sem
tónlistarmann þessa dagana. Hann syngur frábærlega kallinn, hann má
eiga það ... profiði bara að hlusta á diskinn þar sem hann er með
Sinfó....
úúúúúúú
ég skellti krónu í júkboxið og hækkaði vel í því
hún þagði bara og lakkaði á sér neglurnar og þóttist ekkert taka
eftir því... (
okei komið gott...

´
ójá... feeling it